Gengið hefur verið frá samningi um yfirtöku MD Reykjavík á Bæklingadreifingu.

Markmiðið með kaupunum er að bæta dreifingu og auka sýnileika markaðsefnis íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja með einföldum og hagkvæmum hætti.

MD Reykjavík sem er stærsti útgefandi á upplýsinga- og afþreyingarefni fyrir ferðamenn og ferðaþjónustu á Íslandi. MD Reykjavík gefur m.a. út Iceland Review, What’s On, Museum Guide ofl. Mikil samlegðaráhrif verða við kaupin á Bæklingadreifingu þar sem öll útgáfa MD Reykjavíkur bætist við dreifingu Bæklingadreifingar.

MD Reykjavík hefur einnig keypt rekstur Vert markaðsstofu. Vert mun halda áfram að sinna sínum viðskiptavinum en mun einnig bjóða viðskiptavinum Bæklingadreifingar þjónustu við hönnun og framleiðslu markaðsefnis s.s. bæklinga, heimasíðna eða hönnun heildarútlits og ásýndar fyrirtækjanna.

Bæklingadreifing hefur haldið sínu striki í sumar og hefur Gestur V. Svansson tekið yfir dreifinguna en hann sá áður um dreifingu útgáfuefnis MD Reykjavíkur. Gestur hefur margra ára reynslu af dreifingu fyrir ferðamenn og þekkir staði og staðarhaldara betur en flestir.

Eins og áður mun Bæklignadreifing bjóða upp á þrjá dreifingarmöguleika: Höfuðborgarsvæðið í hverri viku, Frá Borgarnesi að Hvolsvelli aðra hvora viku og svo allan hringinn aðra hvora viku frá 15.maí til 15. september. Því til viðbótar er hægt að sérsníða dreifingu bæði hvað varðar tíðni og staðsetningu. Þetta á t.d. vel við ef um nýja afþreyingu eða gistingu er að ræða eða ef óskað er eftir óhefðbundinni dreifingu á afmörkuð svæði.

Markaðsefninu er dreift á alla helstu áfangastaði ferðamanna svo sem hótel, upplýsingamiðstöðvar, sundlaugar, tjaldsvæði, söfn og bensínstöðvar.

Fyrir nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Bárð Örn Gunnarsson: bardur@vert.is